Boðað er til vinnudags að Fossá á komandi hausti eins og venja er. Dagurinn er laugardagur 18. september 2010 og hefst vinnan klukkan 10:00. Allar vinnufúsar hendur velkomnar.
Meðal verkefna er að velja torgtré, finna ákjósanleg jólatrjáasvæði til að vísa fólki á í desember, hreinsa og laga til meðfram göngustíg, klára plöntun og ýmis annar frágangur.
Eiríkur Páll Eiríksson, formaður Fossárnefndar
eirikp(hjá)fa.is
s. 864-2865