Umhverfisfræðsluráð og Landvernd boða til málþings um þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni. Málþingið fer fram á Grand Hótel þriðjudaginn 15. september kl. 13:00 til 16:00. Þátttaka tilkynnist með tölvupósti á postur@umhverfisraduneyti.is. Aðgangur er ókeypis.
Dagskrá málþingsins:
- Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
- Niðurstöður úttektar á menntun til sjálfbærni á Íslandi sem unnin er fyrir umhverfisfræðsluráð. Stefán Gíslason, Environice.
- Umhverfislæsi – getum við lært af öðrum þjóðum? Andrés Arnalds, Landgræðslunni.
Kaffi. - Þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni – hvað þarf til? Mike Littledyke og Rose Littledyke.
- Endurskoðun aðalnámskrár með sjálfbæra þróun í huga. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
Pallborð og umræður.
Nánari upplýsingar má sjá hér.