Skip to main content

Um okkur

Skógræktarfélag Íslands er landssamband skógræktarfélaganna í landinu, stofnað þann 27. júní 1930, á Alþingishátíðinni á Þingvöllum.

Megin markmið félagsins samkvæmt lögum þess er að vinna að framgangi skóg- og trjáræktar í landinu, að endurheimta gróðurlendi og klæða landið skógi. Félagið er málsvari skógræktarfélaganna, gætir hagsmuna þeirra og kemur fram fyrir þeirra hönd þegar þörf krefur.

Í gegnum tíðina hefur útgáfa og fræðsla til almennings skipað stóran sess í starfsemi félagsins, en einnig hefur félagið komið að margvíslegum verkefnum tengdum skógrækt, eitt og sér eða í samstarfi við aðra.

Formenn

Upphafsár Nafn
1930 Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri
1934 Árni Friðriksson fiskifræðingur
1937 Árni G. Eylands framkvæmdastjóri
1940 Valtýr Stefánsson ritstjóri
1961 Hákon Guðmundsson yfirborgardómari
1972 Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri
1984 Hulta Valtýsdóttir blaðamaður
1999 Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri
2007 Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri
2017 Jónatan Garðarsson fjölmiðlamaður

Framkvæmdastjórar

Upphafsár Nafn
1933 Hákon Bjarnason
1968 Snorri Sigurðsson
1988 Brynjólfur Jónsson

Heiðursfélagar Skógræktarfélags Íslands

1930 Frederik Sandwall, Svíþjóð
1949 Torgeir Anderssen-Ryst
1949 Reidar Bathen
1955 Guttormur Pálsson
1957 Hólmjárn J. Hólmjárn
1960 Harald Hope
1961 Valtýr Stefánsson
1965 Gunnlaugur Briem
1965 Eiríkur Hjartarson
1968 Nils Ringset, Noregi
1968 Ludvig G. Braathen, Noregi
1970 Jón Rögnvaldsson
1970 Ármann Dalmannsson
1974 Guðmundur Marteinsson
1975 Daníel Kristjánsson
1976 Toralf Austin, Noregi
1977 Hákon Bjarnason
1977 Guðrún Bjarnason
1977 Hans Berg, Noregi
1981 Þórarinn Þórarinsson
1984 Vigdís Finnbogadóttir
1985 Jóhann Þorvaldsson
1986 Wilhelm Elsrud, Noregi
1989 Sigurður Blöndal
1989 Guðrún Sigurðardóttir
1995 Óli Valur Hansson
1999 Sveinbjörn Dagfinnsson
1999 Olof Aalde, Noregi
1999 Snorri Sigurðsson
2000 Hulda Valtýsdóttir
2000 Jónas Jónasson
2000 Markús Runólfsson
2005 Karl Eiríksson
2005 Páll Samúelsson
2006 Hólmfríður Finnbogadóttir
2010 Óskar Þór Sigurðsson
2012 Gísli Gestsson
2015 Þorsteinn Tómasson
2019 Þorvaldur S. Þorvaldsson
2019 Elísabet Kristjánsdóttir
2022 Magnús Jóhannesson
2023 Magnús Gunnarsson