Tré ársins 2023 verður formlega útnefnt við hátíðlega athöfn sunnudaginn 10. september. Að þessu sinni er um að ræða sitkagreni (Picea sitchensis) á Seyðisfirði, ofan við Hafnargötu 32 (þar sem Sandfell stóð).
Dagskrá útnefningarathafnar:
Kl. 13:00
- Tónlist: Arna Magnúsdóttir og Ágúst Torfi Magnússon
- Ávarp: Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands
- Mæling á Tré ársins 2023
- Ávarp: Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings
- Afhending viðurkenningarskjala
- Ávarp: Hafberg Þórisson, styrktaraðili Trés ársins
- Veitingar í boði Skógræktarfélags Íslands í Tækniminjasafninu.
Tónlist leikin af fingrum fram.
Allir velkomnir!
Styrktaraðili Trés ársins er Lambhagi ehf.