Tré ársins verður formlega útnefnt mánudaginn 12. september kl. 16. Að þessu sinni er um að ræða sitkagrenitré á Kirkjubæjarklaustri. Athöfnin fer fram vestan við Systrafoss.
Dagskrá:
- Tónlist. Hjónin Zbigniew Zuchowicz, skólastjóri Tónlistarskóla Skaftárhrepps og Teresa Zuchowicz
- Ávarp: Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands
- Mæling á Tré ársins
- Ávarp: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
- Afhending viðurkenningarskjala
- Ávarp: Þröstur Eysteinsson, skógræktarstjóri
Veitingar í boði Skógræktarfélags Íslands.
Tónlist leikin af fingrum fram.
Allir velkomnir!
Styrktaraðili Tré ársins er Lambhagi ehf.