Skógræktarfélag Reykjavíkur, í samstarfi við Else Möller skógfræðing, stendur í ár fyrir röð námskeiða þar sem sérfræðinga fara ofan í saumana á mikilvægum atriðum í ræktun og umhirðu jólatrjáa. Er nú komið að þemadegi tengdum flokkun og sölu trjáa og verður hann haldinn fimmtudaginn 11. september kl. 9:30-16:00, á Elliðavatni í Heiðmörk.
Dagskrá:
Kl. 9:30-10:00 | Sala jólatrjáa á Íslandi. Flokkun, gæðamál og söluaðferðir. Kynning á dagskrá og viðfangsefni dagsins. Else Möller skógfræðingur. |
Kl. 10:00-10:45 | Sala jólatrjáa hjá Skógrækt ríkisins. Hvernig fer sala jólatrjá fram hjá Skógrækt ríkisins. Flokkun, söluaðferðir og árangur. Hreinn Óskarsson, skógfræðingur og skógarvörður á Suðurlandi. |
Kl. 10:45-11:00 | Kaffi |
Kl. 11:00-12:00 | Sala íslenskra jólatrjáa hjá Blómavali. Sölumál tengd íslenskum jólatrjám séð frá sjónarhóli sölumannsins. Kristinn Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Blómavali. |
Kl. 12:00-13:00 | Hádegismatur |
Kl. 13:0-13:30 | Íslenskt flokkunarkerfi fyrir alla – hvernig á það að vera? Tillögur til umræðu. Else Möller skógfræðingur. |
Kl. 13:30-14:00 | Kaffi |
Kl. 14:00-15:30 | Að velja og flokka jólatré fyrir næstu jól. Hvenær og hvernig förum við að þessu? Farið í reiti í Heiðmörk með trjám sem eru tilbúin fyrir sölu og rætt um gæði og flokkun undir leiðsögn Gústafs Jarls Viðarssonar og Sævars Hreiðarssonar. |
Kl. 15:30-16:00 | Kaffi og umræður. |
Kostnaður fyrir daginn: 10.000 kr.
Upplýsingar og skráning fyrir 8. september:
Else Möller else.akur@gmail.com GSM: 867-0527
f.h.Skrf. Rvk gustafjarl@heidmork.is GSM: 856-0059