Skógræktarfélag Kópavogs boðar til fræðslufundar fimmtudaginn 26. október og hefst hann kl. 20:00. Á fundinum mun Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri flytja erindi í máli og myndum um uppgræðslu og skógrækt á Hólasandi – en þar hefur náðst einstaklega góður árangur við uppgræðslu örfoka lands.
Fundurinn verður haldinn í Kiwanishúsinu, Smiðjuvegi 13a, Kópavogi.
Kaffi og meðlæti í boði félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna á fundinn og taka með sér gesti.
Stjórn Skógræktarfélags Kópavogs