Skógræktarfélag Grindavíkur stendur fyrir starfsdegi í Selskógi sunnudaginn 26. maí. Hafist verður handa kl. 10 og unnið fram eftir degi, en fólki er frjálst að koma og fara þegar það vill. Öll hjálp vel þegin. Kaffi og með því verður í boði. Sjá nánar á Facebook-síðu Skógræktarfélagsins (hér).