Dagana 3.-9. september síðast liðinn gekkst Skógræktarfélag Íslands fyrir ferð til Noregs þar sem ferðast var um skóglendi Noregs frá Bergen til Osló. Nokkrir Garðbæingar voru með í för og verða sýndar myndir úr þessari ferð næst komandi fimmtudagskvöld 29. október 2009 í Garðabergi, aðkoma austan megin við Garðatorg.
Myndakvöldið hefst kl. 20:00.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Stjórn Skógræktarfélags Garðabæjar
(Kort: www.ja.is)