Fimmtudaginn 29. júní verður skógarganga í Lystigarðinum á Akureyri í samstarfi Skógræktarfélags Eyfirðinga og Lystigarðsins. Í göngunni verður kastljósinu beint að reyniættkvíslinni (Sorbus) enda eru margar tegundir af reyni í garðinum. Gangan hefst kl. 18:00 og er áætlað að standi til kl.19:30.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
Sjá Facebook-síðu viðburðar: https://www.facebook.com/events/470378946655124/permalink/470390156654003/