Reykjavíkur Akademían stendur fyrir tveimur málstofum um áhrif loftslagsbreytinga á náttúru, lífríki og samfélag. Markmiðið er að fá gott yfirlit yfir staðreyndir og hugsanlegar afleiðingar fyrir Ísland og Norðurslóðir, þær breytingar sem orðið hafa og þær sem kunna að verða.
Málstofurnar verða í húsakynnum Reykjavíkur Akademíunnar á Hringbraut 121, 4. hæð, laugardagana 20. mars og 10. apríl, kl. 13 – 15:30
Laugardaginn 20. mars kl. 13:00:
Náttúran næst okkur
Jöklar á Íslandi | Helgi Björnsson, jöklafræðingur, prófessor, Háskóla Íslands |
Lífríki sjávar og loftslagsbreytingar | Ólafur S. Ástþórsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunar |
Gróður og vistkerfi | Ingibjörg Svala Jónsdóttir, vistfræðingur, prófessor, Háskóla Íslands |
Fuglar á faraldsfæti | Einar Ó Þorleifsson, náttúrufræðingur, Reykjavíkur Akademíunni |
Loftslag og landnýting | Bjarni Diðrik Sigurðsson, vistfræðingur prófessor Landbúnaðarháskóla Íslands |
Laugardaginn 10. apríl kl. 13:00:
Hnattrænt samhengi og hugsanleg áhrif loftslagsbreytinga á búsetu, atvinnulíf og menningu
Meðal fyrirlesara verður Halldór Björnsson, veðurfræðingur, Veðurstofu Íslands og Björk Bjarnadóttir umhverfisþjóðháttafræðingur sem flytur erindið „Hún heitir móðir jörð og hún er með hita“ – um upplifanir og útskýringar frumbyggja Kanada á loftslagsbreytingum.
Hánorræn tegund – helsingjar á Jökulsárlóni (Mynd: Jennifer Levy).