Reykjavíkur Akademían stendur fyrir málstofu loftslagsbreytingar í hnattrænu samhengi og áhrif þeirra á búsetu, atvinnulíf og menningu. Málstofan er haldin í húsakynnum Reykjavíkur Akademíunnar á Hringbraut 121, 4. hæð, laugardaginn 10. apríl, kl. 13 – 15:30
Dagskrá:
Veðurfarsbreytingar á Íslandi Halldór Björnsson veðurfræðingur
„Hún heitir móðir jörð og hún er með hita“ – um upplifanir og útskýringu frumbyggja Kanada á loftslagsbreytingum Björk Bjarnadóttir umhverfisþjóðfræðingur
Loftslagsbreytingar í norðri – Sundrun eða samvinna? Auðlindadeilur og umhverfisstjórnmál á óvissutímum Auður H. Ingólfsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur
Siðleysi á heimsmælikvarða Ólafur Páll Jónsson heimspekingur
Fundarstjóri verður Sólveig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavíkur Akademíunnar.
Heitt á könnunni og allir velkomnir.
Nánari upplýsingar veita Einar Ó. Þorleifsson (s. 857-2161) og Guðrún Hallgrímsdóttir (s. 899-7783).