Opinn skógur er samstarfsverkefni skógræktarfélaga og styrktaraðila. Markmiðið með verkefninu Opinn skógur er að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir, sem eru í umsjón skógræktarfélaga. Áhersla er lögð á að bæta aðgengi og miðla upplýsingum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu, svo að almenningur geti nýtt sér Opinn skóg til áningar, útivistar og heilsubótar.
Nú hafa sautján svæði verið opnuð með formlegum hætti:
Daníelslundur í Borgarfirði (2002)
Snæfoksstaðir í Grímsnesi (2004)
Tunguskógur við Ísafjarðarkaupstað (2004)
Eyjólfsstaðaskógur á Héraði (2004)
Sólbrekkur á Suðurnesjum (2004)
Hofsstaðaskógur á Snæfellsnesi (2005)
Tröð við Hellissand á Snæfellsnesi (2006)
Hálsaskógur við Djúpavog (2008)
Laugalandsskógur á Þelamörk (2012)
Völvuskógur á Skógum undir Eyjafjöllum (2013)
Skarðsdalur á Siglufirði (2015)