Öskjuhlíðardagurinn verður haldinn í fyrsta sinn laugardaginn 7. maí. Tilefni þess er að þá verður undirritað samkomulag um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivistarsvæðið í Öskjuhlíð með það að markmiði að styrkja svæðið sem náttúruperlu, útivistar- og kennslusvæði. Starfshópnum er ætlað að móta tillögur um verkefni með eftirfarandi markmið að leiðarljósi:
-
Skógur: Að auka fjölbreytni í skógrækt og bæta umhirðu skógarsvæðisins.
-
Fræðsla: Að efla fræðslu og þekkingu almennings á náttúru og sögu Öskjuhlíðar, meðal annars í gegnum fjölbreytt skólastarf í Öskjuhlíð.
-
Rannsóknir: Að efla fjölbreyttar rannsóknir á svæðinu, þar á meðal notkun þess.
-
Útivist: Að efla lýðheilsu með því að bæta aðstöðu í Öskjuhlíð til fjölbreyttrar útivistar og hreyfingar.
-
Skipulag: Að skoða mögulegar breytingar á skipulagi svæðisins með tilliti til dvalarsvæða, stígatenginga o.s.frv.
Dagskrá:
Taktu þátt í ratleik í Öskjuhlíðinni, farðu í siglingu í Nauthólsvík, kynnstu Öskjuhlíðinni í skemmtilegum gönguferðum með leiðsögn, hlustaðu á Ragga Bjarna og Gleðisveit lýðveldisins, lærðu allt um vorverkin í garðinum, að búa til moltu og farðu í sjósund í Nauthólsvík. Sjáðu stóra skógarsög að verki, heimsæktu börnin í Barnaskóla Hjallastefnunnar og hlýddu á bestu ljóðskáld þjóðarinnar í skóginum í Öskjuhlíð.
Rathlaup Heklu og Vals:
Rathlaupsfélagið Hekla og Knattspyrnufélagið Valur standa fyrir rathlaupi í Öskjuhlíðinni. Boðið verður upp á tvær hefðbundnar rathlaupsbrautir, langa og miðlungslanga. Brautirnar eru útbúnar stafrænum tímatökubúnaði frá SPORTident og geta þátttakendur valið að fara eina eða báðar brautirnar. Þá verður boðið upp á braut fyrir börn og fjölskyldur. Brautin er stutt og lögð þannig að auðvelt er að fara með barnavagna um hana.