Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir nytjamarkaði að Elliðavatni í Heiðmörk helgina 17.-18. ágúst kl. 10 -16.
Allt milli himins og jarðar er vel þegið á markaðinn og er fólk hvatt til að taka til í geymslum, bílskúrum og skúmaskotum. Tekið verður á móti framlögum vikuna fyrir markaðshelgina.
Einnig verður þarna skiptimarkaður á trjáplöntum og fræjum.
Kaffi, kakó og bakkelsi á viðráðanlegu verði.
Lifandi músik, opið svið (þeir sem vilja stíga á stokk hafi samband við Tryggva í 692-1781).
Skógræktarfélag Reykjavíkur hvetur alla velunnara skógræktar að leggja sér lið og taka þátt í skemtilegum viðburði.
Aðkeyrsla að Elliðavatni er inn Heiðmerkurveg við Rauðhóla.
Nánari upplýsingar í síma 564-1770.