Hjálmar R. Bárðarson, f.v. siglingamálastjóri, ánafnaði Landgræðslusjóði 30% af eigum sínum, en hann lést 7. apríl 2009. Landgræðslusjóður og Landgræðsla ríkisins, sem erfði Hjálmar til jafns við Landgræðslusjóð, hafa stofnað minningarsjóð um Hjálmar og eiginkonu hans, Else S. Bárðarson.
Í erfðaskránni komu fram óskir Hjálmars um ráðstöfun á arfinum og óskaði hann eftir því að fénu yrði varið til landgræðsluskógræktar, „þar sem áður var lítt gróið bersvæði, ef til vill þar sem gróðursett lúpína hefur gert landsvæði vænlegt til skógræktar“, eins og þar segir.
Sjóðurinn fær í stofnfé 20 milljónir króna frá hvorum aðila og á að starfa í 10 ár. Er markmið hans að styrkja rannsóknaverkefni í landgræðslu og skógrækt, með sérstakri áherslu á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með lúpínu. Styrkþegar geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og opinberir aðilar.