Kolviður er sjóður sem miðar að því að gera almenningi kleift að binda kolefni í gróðri og jarðvegi á móti losun sinni. Tilgangurinn er að hjálpa til við að draga úr styrk koldíoxíðs (CO2) í andrúmslofti.
Stofnaðilar Kolviðar eru Skógræktarfélag Íslands og Landvernd.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Kolviðar: www.kolvidur.is