Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður sunnudaginn 15. desember kl. 12-15 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum. Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré.
Með kaupum á íslensku jólatré stuðlum við að minni mengun, styrkjum gott málefni og starfsemi í heimabyggð.
Nánari upplýsingar á Facebook-síðu félagsins: https://www.facebook.com/skograektarfelagrangaeinga/ og í síma 869-2042.