Skógræktarfélag Eyfirðinga er með jólatrjáasölu í Laugalandsskógi á Þelamörk helgarnar 9.-10. og 16.-17. desember, kl. 11-15. Fyrir hvert selt jólatré eru gróðursett 25 ný tré!
Þegar draumatréð er fundið verður hægt að orna sér við opinn eld og fá sér ketilkaffi, kakó og piparkökur í boði félagsins. Oft skapast skemmtileg útivistarstemmning á svæðinu og heimsókn á Þelamörkina er ómissandi fyrir margar fjölskyldur í aðdraganda jóla.
Verð á tré er kr. 10.000 óháð stærð svo endilega skelltu þér með fjölskyldunni í Laugalandsskóg og finnið hið fullkomna jólatré!
Jólatrjáasalan styrkir starf félagsins sem annast útivistarsvæðið í Kjarnaskógi, m.a. treður þar göngustíga og skíðaspor og sér um tíu aðra skógarreiti á Eyjafjarðarsvæðinu.
Vegvísir:
Frá Akureyri/Dalvík – keyrt í átt að Þelamerkurskóla en áður en komið er að Laugalandsskógi og Þelamerkurskóla er beygt af þjóðvegi 1 við Grjótgarð og ekið eftir gömlum vegi samsíða þjóðveginum í átt að skóginum.
Allar nánari upplýsingar í síma 893-4047 eða á netfanginu ingi@kjarnaskogur.is
Hefðbundin jólatrjáasala verður svo í starfsstöð félagins í Kjarnaskógi. Hefst hún mánudaginn 4. desember og verður opin daglega fram á Þorláksmessu, kl. 10-18. Heimaræktuð tré og greinar og fleira fallegt! Nánari upplýsingar á heimasíðu félagins: https://www.kjarnaskogur.is/jolatre.
Staðsetning Laugalandsskógs:
https://goo.gl/maps/L8YocH3Dd2mLwbNk8
Sjá einnig Facebook-síðu félagsins – https://fb.me/e/1xFQTUh98
Fjölskyldustemmning í Laugalandsskógi.
Frá skreytingadeildinni.
Stolt með nýfundið jólatré.