Laugardaginn 6. október stendur Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fyrir göngu um bæinn. Hist verður í Hellisgerði kl. 10:00 og skoðuð trén í Gerðinu, en síðan rölt um bæinn og hugað að gróðri í nærliggjandi hverfum. Nokkur hávaxin tré verða hæðarmæld.
Leiðsögumenn verða starfsmenn Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Gangan tekur um tvær klukkustundir.
Allir velkomnir!
Nánari upplýsingar fást í síma félagsins: 555-6455.