Skógræktarfélag Reyðarfjarðar, í samvinnu við Skógræktarfélag Íslands og Alcoa á Íslandi, fékk í vor styrk úr Global ReLeaf verkefninu, sem er samvinnuverkefni American Forests og Alcoa Foundation. Sótt var um fjármagn til gróðursetningar trjáplantna á Reyðafirði og í Vinaskógi og var hugsunin þar á bak við að tengja með því þau tvö horn landsins þar sem Alcoa er með starfsstöðvar. Skógræktarfélag Reyðarfjarðar stóð fyrir gróðursetningadegi laugardaginn 13. ágúst. Mættu þar starfsmenn frá Alcoa ásamt meðlimum Skógræktarfélags Reyðarfjarðar og fulltrúa frá Skógræktarfélagi Íslands og settu niður trjáplöntur. Gróðursetningu lauk svo á pylsum og annarri hressingu.
Starfsmenn Alcoa og félagar úr Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar skemmtu sér vel við gróðursetningu (Mynd: Hilmar Sigurbjörnsson).