Skógræktarfélag Mosfellsbæjar stendur fyrir skógargöngu miðvikudaginn 22. júní. Mæting er við Hafravatnsrétt kl. 19:30. Gengið verður um Þormóðsdal og tekur gangan um eina og hálfa klukkustund. Veitingar í boði félagsins. Allir velkomnir!