Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) stendur fyrir ráðstefnu til heiðurs íslenska birkinu. Ráðstefnan er haldin að Reykjum í Ölfusi föstudaginn 5. nóvember 2010 og er ætluð öllu fagfólki í trjárækt sem og öðru áhugafólki.
Dagskrá
09:30 – 09:40 | Setning ráðstefnunnar – Ágúst Sigurðsson rektor LbhÍ |
09:40 – 10:10 | Vistfræði birkis – Ása L. Aradóttir, prófessor LbhÍ |
10:10 – 10:40 | Kynblöndun birkis og fjalldrapa – yfirlit yfir íslenskar aðstæður – Ægir Þór Þórsson, garðyrkjuráðunautur Bændasamtökum Íslands. |
10:40 – 11:00 | Kaffihlé |
11:00 – 11:30 | Kynbætur á birki, Embla I og II – Þorsteinn Tómasson, skrifstofustjóri sjávarútvegs-og landbúnaðarráðuneyti |
11:30 – 12:00 | Drög að stefnu í verndun og endurheimt birkiskóga – Þröstur Eysteinsson, fagmálastjóri Skógræktar ríkisins. |
12:00 – 13:00 | Hádegisverður |
13:00 – 13:30 | Birki í skógrækt – áætlun til framtíðar – Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi. |
13:30 – 14:00 | Framleiðsla skógarplantna af birki – Jón Kristófer Arnarson, verkefnisstjóri LbhÍ |
14:00 – 14:30 | Birki í garða – notkun, framleiðsla og fleira. – Steinar Björgvinsson, skógfræðingur Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar. |
14:30 – 14:50 | Kaffihlé |
14:50 – 15:20 | Birkiplágur – Guðmundur Halldórsso,n rannsóknarstjóri Landgræðslu ríkisins. |
15:20 – 15:40 | Fagurfræði birkis – Helena Guttormsdóttir, aðjúnkt Lbhí |
15:40 – 16:00 | Fyrirspurnir og umræður í pallborði |
Ráðstefnustjóri er Björgvin Örn Eggertsson, LbhÍ
Ráðstefnugjald er kr. 3.900 (hádegismatur og kaffi innifalið) og millifærist á reikning 0354-26-4237, kt. 411204-3590, skrá nafn þátttakanda í skýringar.
Skráning fer fram á netfanginu endurmenntun (hjá) lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími) eða í síma 433-5000 til 4 nóvember.