Laugardaginn 16. september verður Opinn skógur í Brynjudal í Hvalfirði formlega opnaður.
Icelandair Group er stoltur styrktaraðili Opinna skóga og í tilefni af opnuninni verður hátíðardagskrá með fjölskylduvænni skemmtun. Allir velkomnir!
Svæðið er kjörið berjatínslusvæði auk þess sem hægt er að finna þrautabraut á svæðinu fyrir börn eldri en ca. 10 ára. Fjöldamargar gönguleiðir eru á svæðinu og boðið verður upp á grillaðar pylsur.
Kl. 13:45 | Tónlistaratriði |
Kl. 14:00 | Opinn skógur formlega opnaður. |
Ávörp |
|
Kl. 14:30 | Léttar veitingar |
Kl. 15:00 | Sirkus Íslands verður með skemmtiatriði fyrir alla aldurshópa Tálgunarnámskeið (kl. 14:00 – 16:00). Ung börn (6-8 ára) verða að vera í fylgd fullorðinna Þrautabraut og fleira |
Kl. 16:00 | Dagskrárlok |
Hlökkum til að sjá ykkur!
Opinn skógur í Brynjudal er sextándi skógurinn sem opnaður er undir merkjum Opins skógar.