Nú um helgina komu síðustu hópar þessa árs í heimsókn í jólaskóginn í Brynjudal og sáu veðurguðirnir um að það var smá hvítur litur á jörðinni þessa síðustu helgi. Fengu gestir góðan göngutúr um skóginn í leit að rétta trén og yljandi kakó-sopa að leit lokinni. Einnig sást til nokkurra rauðklæddra og hvítskeggjaðra manna á ferð í skóginum…
Skógræktarfélag Íslands þakkar öllum þeim sem sóttu sér tré í jólaskóginn í Brynjudal fyrir komuna og vonandi sjáum við sem flesta aftur að ári, á ári alþjóðlegur ári skóga!
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá „vertíð“ þessa árs í Brynjudal.

Búin að finna rétta tréð (Mynd: RF).

Börnin fá hollar og góðar mandarínur frá þessum jólasvein (Mynd: RF).

Jólatrénu pakkað í net (Mynd: RF).

Það er alltaf gaman að syngja og dansa með jólasveinunum (Mynd: RF).

Varðeldurinn er alltaf vinsæll (Mynd: RF).

Jólasveinninn heldur heim á leið (Mynd: RF).
Nýlegar athugasemdir