Búið er að setja upp nýtt símkerfi á skrifstofu félagsins og því er nú aftur hægt að ná í starfsfólk í gegnum skrifstofunúmerið 551-8150.
Skrifstofa Skógræktarfélags Íslands verður lokuð dagana 23. – 24. mars, þar sem starfsfólk verður allt á Fagráðstefnu skógræktar í Hörpunni. Skrifstofan opnar svo aftur að venju mánudaginn 27. mars.
Símkerfið á skrifstofu félagsins liggur nú niðri og kemur til með að liggja niðri einhvern tíma. Ef þarf að ná í starfsfólk Skógræktarfélagsins sendið tölvupóst eða hafið samband í farsíma.
Brynjólfur: 820-2113, bj@skog.is
Einar: 891-8643, eg@skog.is
Hrefna: 899-6833, hrefna@skog.is
Jón Ásgeir: 865-3080, jon@skog.is
Ragnhildur: 897-1010, rf@skog.is
Aðalfundur Skógræktarfélags Garðabæjar verður haldinn í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli við Kirkjulund mánudaginn 13. mars 2017 og hefst kl. 20:00.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf:
1.1. Kjör fundarstjóra
1.2. Skýrsla stjórnar 2016
1.3. Reikningar félagsins 2016
1.4. Ákvörðun um félagsgjöld 2017
1.5. Stjórnarkjör. Kjósa skal formann, þrjá aðalmenn og tvo til vara auk skoðunarmanns reikninga.
2. Önnur mál
3. Kaffiveitingar í boði félagsins
4. Erindi Ólafs Njálssonar frá Gróðrarstöðinni Nátthaga: „Sitt lítið af hverju um þintegundir og fleira gott“.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Stjórn Skógræktarfélags Garðabæjar
Aðalfundur Skógræktarfélags Eyrarsveitar verður haldinn í Bæringsstofu í Sögumiðstöðinni föstudaginn 10. mars kl. 17.
Hefðbundin aðalfundarstörf.
Takið þátt í ræktun yndisskóga til kolefnisjöfnunar og útiveru.
Spennandi verkefni framundan.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Nú á vormánuðum eru ýmis áhugaverð námskeið fyrir ræktunarfólk í boði hjá Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands.
Má þar meðal annars finna námskeið um húsgagnagerð úr skógarefni, tálgun og trjáfellingar og grisjun með keðjusög.
Upplýsingar um námskeiðin, sem og önnur námskeið sem Landbúnaðarháskólinn stendur fyrir má finna á heimasíðu skólans – www.lbhi.is.
Fagráðstefna skógræktar 2017 verður haldin dagana 23. – 24. mars 2017 í Hörðu. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Með þekkingu ræktum við skóg“, en þetta er jafnframt afmælisráðstefna Mógilsár, sem fagnar 50 árastarfi sínu á þessu ári. Starfsmenn Mógilsár kynna rannsóknir sínar fyrri daginn og þann seinni verða flutt ýmis erindi um skógrækt í sinni fjölbreyttustu mynd.
Skráningargjald er kr. 9.000 og innifelur aðgang að öllum fyrirlestrum, ráðstefnugögn, kaffi og vettvangsferð á Mógilsá. Að auki verður hægt að skrá sig í hádegismat í Hörpu og kostar það kr. 5.800 fyrir báða dagana.
Hátíðarkvöldverður verður í Súlnasal Hótel Sögu 23. mars og hefst kl. 20. Veislustjóri verður Gísli Einarsson og Sigurður Helgi Oddsson spilar undir borðhaldi og fjöldasöng. Hátíðarkvöldverður kostar kr. 11.900 og þarf fólk að skrá sig sérstaklega í hann.
Fljótlega verður opnað fyrir skráningar á ráðstefnuna á vef Skógræktarinnar – www.skogur.is
Vert er að vekja athygli á sérstöku ráðstefnutilboði fyrir gistingu á Hótel Sögu, kr. 15.800 nóttin fyrir eins manns herbergi og kr. 18.700 fyrir tveggja manna herbergi. Til þess að nýta tilboðið þarf að bóka fyrir 1. febrúar 2017 í gegnum þennan tengil hótelsins.
Fagráðstefna skógræktar er skipulögð og haldin af Skógræktinni, Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktarfélagi Íslands, Landssamtökum skógareigenda og Skógfræðingafélaginu. Í skipulagsnefnd eru: Edda Sigurdís Oddsdóttir (edda@skogur.is), Bjarni Diðrik Sigurðsson (bjarni@lbhi.is), Einar Gunnarsson (eg@skog.is), Hrönn Guðmundsdóttir (hronn.lse@gmail.com) og Lárus Heiðarsson (lalli@skogur.is).
Drög að dagskrá:
23.3.2017 Kaldalón, Hörpu
09:00 |
Setning ráðstefnu |
|
09:10 |
Ávarp skógræktarstjóra |
Þröstur Eysteinsson |
09:30 |
Straumar og stefnur í skógræktarrannsóknum á Norðurlöndunum |
Jonas Rönnberg |
10:15 |
Kaffi |
|
10:40 |
Saga skógræktarrannsókna á Íslandi |
Aðalsteinn Sigurgeirsson |
11:00 |
Skógræktarrannsóknir til framtíðar |
Edda S. Oddsdóttir |
11:20 |
Erfðaauðlindin |
Brynjar Skúlason |
11:50 |
Plöntusjúkdómar |
Halldór Sverrisson |
12:10 |
Matur |
|
13:10 |
Skaðvaldar |
Brynja Hrafnkelsdóttir |
13:30 |
Landskógaúttekt |
Arnór Snorrason |
13:50 |
Notkun landupplýsinga í skógræktarrannsóknum |
Björn Traustason |
14:10 |
Hvernig viðrar? |
Bjarki Þ. Kjartansson |
14:30 |
Árhringir og umhverfisbreytur |
Ólafur Eggertsson |
14:50 |
Asparstiklingar |
Jóhanna Ólafsdóttir |
15:10 |
Akurskógrækt |
Þorbergur H. Jónsson |
15:30 |
Ferð á Mógilsá |
|
18:00 |
Brottför til Reykjavíkur |
|
20:00 |
Hátíðarkvöldverður á Hótel Sögu |
24.3. 2017 Kaldalón, Hörpu
09:00 |
Skógrækta til landgræðslu |
Árni Bragason |
09:20 |
Skógur og umhverfismál |
Bjarni D. Sigurðsson |
09:40 |
Endurskinshæfni (albedo) ólíkra gróðurlenda |
Brynhildur Bjarnadóttir |
10:00 |
Kaffi |
|
10:30 |
Skammlotuskógrækt með alaskaösp og áhrif áburðargjafar á hana |
Jón Auðunn Bogason |
10:50 |
Uppruni og erfðabreytileiki blæaspar á Íslandi |
Sæmundur Sveinsson |
11:10 |
Kynbætur á birki |
Þorsteinn Tómasson |
11:30 |
Íbætur skógarmoldar (og almennt um skógrækt á Skógarströnd) |
Sigurkarl Stefánsson |
11:50 |
Matur |
|
13:00 |
Meðferð lerkiskógarreita í ljósi beinleika stofna |
Páll Sigurðsson |
13:20 |
Vangaveltur um vindfall í skógum |
Valdimar Reynisson og Björgvin Eggertsson |
13:40 |
Lesið í skóginn, fræðsla í skógrækt |
Ólafur Oddsson |
14:00 |
Veggspjöld og kaffi |
|
15:00 |
Miðlun þekkingar |
Pétur Halldórsson |
15:30 |
Pallborðsumræður – samantekt |
|
16:30 |
Ráðstefnuslit |
Skógræktarfélag Árnesinga er með jólatrjáasölu að Snæfoksstöðum dagana 21. – 23. desember, opið kl. 11-16.. Sjá heimasíðu félagsins – http://www.skogarn.is/
Björgunarsveitin Brák selur jólatré frá Skógræktarfélagi Borgarfjarðar í húsnæði Brákar, Pétursborg, dagana 21. – 23. desember kl. 16-20. Sjá Facebook-síðu félagsins: https://www.facebook.com/skograektarfelagborgarfjardar/
Skógræktarfélag Eyrarsveitar selur jólatré úr Brekkuskógi og Eiðisskógi fram að Þorláksmessu. Sjá Facebook-síðu félagsins: https://www.facebook.com/search/top/?q=sk%C3%B3gr%C3%A6ktarf%C3%A9lag%20eyrarsveitar
Jólatrjáa- og skreytingasala Skógræktarfélags Hafnarfjarðar er opin alla daga kl. 10-18 – jólatré, tröpputré, kransar og fleira. Sjá heimasíðu félagsins – http://www.skoghf.is/
Skógræktarfélag Mosfellsbæjar er með jólatrjáasölu í Hamrahlíð við Vesturlandsveg alla daga frá 10. desember til 23. desember. Opið kl. 10-16 um helgar og kl. 12-17 virka daga. Sjá heimasíðu félagsins – www.skogmos.net
Upplýsingar um jólatrjáasölur skógræktarfélaganna má einnig finna á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands – www.skog.is/jolatre
Nú fjórðu helgi í aðventu (og næstu daga) má kaupa jólatré hjá ýmsum skógræktarfélögum:
Skógræktarfélag Akraness er með jólatrjáasölu í Slögu sunnudaginn 18. desember kl. 12-15. Sjá nánar á heimasíðu félagsins – www.skog.is/akranes/
Skógræktarfélag A-Húnvetninga er með jólatrjáasölu á Gunnfríðarstöðum helgina 17. – 18. desember kl. 11-15.
Skógræktarfélag Árnesinga er með jólatrjáasölu um helgina að Snæfoksstöðum, opið kl. 11-16. Sjá nánar á heimasíðu félagsins – http://www.skogarn.is/
Skógræktarfélag Borgarfjarðar er með jólatrjáasölu í Reykholti sunnudaginn 18. desember kl 11-15, í Grafarkoti helgina 17. – 18. desember kl. 11-15 í samstarfi við Björgunarsveitina Heiðar og í Holti sunnudaginn 18. desember kl. 11-15 í samstarfi við Björgunarsveitina Brák. Einnig verður Björgunarsveitin Brák með jólatrjáasölu í húsnæði Brákar, Pétursborg, dagana 21. – 23. desember kl. 16-20.
Skógræktarfélag Eyfirðinga er með jólatrjáasölu í Laugalandsskógi um helgina kl. 11-15. Sjá nánar á Facebook-síðu félagsins: https://www.facebook.com/Sk%C3%B3gr%C3%A6ktarf%C3%A9lag-Eyfir%C3%B0inga-155414624471507/?hc_ref=SEARCH&;fref=nf
Skógræktarfélag Eyrarsveitar selur jólatré úr Brekkuskógi og Eiðisskógi. Hefst salan helgina 17. – 18. desember. Sjá nánar á Facebook-síðu félagsins: https://www.facebook.com/Sk%C3%B3gr%C3%A6ktarf%C3%A9lag-Eyrarsveitar-462859850484023/?hc_ref=PAGES_TIMELINE&;fref=nf
Jólatrjáa- og skreytingasala Skógræktarfélags Hafnarfjarðar er opin alla daga kl. 10-18 – jólatré, tröpputré, kransar og fleira. Sjá nánar á heimasíðu félagsins – http://www.skoghf.is/
Skógræktarfélag Mosfellsbæjar er með jólatrjáasölu í Hamrahlíð við Vesturlandsveg alla daga frá 10. desember til 23. desember. Opið kl. 10-16 um helgar og kl. 12-17 virka daga. Sjá heimasíðu félagsins – www.skogmos.net
Skógræktarfélagið Mörk er með jólatrjáasölu í Stóra-Hvammi, Fossi á Síðu, sunnudaginn 18. desember kl. 13-15.
Skógræktarfélag Reykjavíkur er með jólatrjáasölu um helgina á Jólamarkaðinum á Elliðavatni kl. 11-16:30 og í Jólaskóginum á Hólmsheiði kl. 11-16. Sjá nánar á Facebook-síðu markaðarins: https://www.facebook.com/heidmork/ og heimasíðu félagsins – http://heidmork.is/
Skógræktarfélög Kópavogs, Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósarhrepps eru með jólatrjáasölu á Fossá í Hvalfirði allar helgar fram að jólum kl. 10-16.
Upplýsingar um jólatrjáasölur skógræktarfélaganna má einnig finna á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands – www.skog.is/jolatre
Nú þriðju helgi í aðventu (og næstu daga) má kaupa jólatré hjá ýmsum skógræktarfélögum:
Skógræktarfélag Akraness er með jólatrjáasölu í Slögu sunnudaginn 11. desember kl. 12-15. Sjá nánar á heimasíðu félagsins – https://www.skog.is/akranes/
Skógræktarfélag Austurlands er með jólatrjáasölu í Eyjólfsstaðaskógi helgina 10.-11. desember kl. 12-15.
Skógræktarfélag Árnesinga er með jólatrjáasölu um helgina að Snæfoksstöðum, opið kl. 11-16. Sjá nánar á heimasíðu félagsins – http://www.skogarn.is/
Skógræktarfélag Dýrafjarðar er með jólatrjáasölu sunnudaginn 11. desember kl. 13-15 að Söndum.
Skógræktarfélag Eyfirðinga er með jólatrjáasölu í Laugalandsskógi um helgina kl. 11-15. Sjá nánar á Facebook-síðu félagsins: https://www.facebook.com/Sk%C3%B3gr%C3%A6ktarf%C3%A9lag-Eyfir%C3%B0inga-155414624471507/?hc_ref=SEARCH&;fref=nf
Jólaskógur Skógræktarfélags Garðabæjar er í Sandahlíð ofan við Vífilsstaðavatn laugardaginn 10. desember kl. 12-16. Sjá nánar á heimasíðu félagsins – http://www.skoggb.is/
Jólatrjáa- og skreytingasala Skógræktarfélags Hafnarfjarðar er opin alla daga kl. 10-18 – jólatré, tröpputré, kransar og fleira. Sjá nánar á heimasíðu félagsins – http://www.skoghf.is/
Skógræktarfélag Ísafjarðar er með jólatrjáasölu í reit ofan Bræðratungu laugardaginn 10. desember kl. 13-15.
Skógræktarfélag Mosfellsbæjar er með jólatrjáasölu í Hamrahlíð við Vesturlandsveg alla daga frá 10. desember til 23. desember. Opið kl. 10-16 um helgar og kl. 12-17 virka daga. Sjá heimasíðu félagsins – www.skogmos.net
Skógræktarfélag Reykjavíkur er með jólatrjáasölu um helgina á Jólamarkaðinum á Elliðavatni kl. 11-16:30 og í Jólaskóginum á Hólmsheiði kl. 11-16. Sjá nánar á Facebook-síðu markaðarins: https://www.facebook.com/heidmork/ og heimasíðu félagsins – http://heidmork.is/
Skógræktarfélag Skilmannahrepps er með jólatrjáasölu í Álfholtsskógi laugardaginn 10. desember kl. 12-16.
Skógræktarfélög Kópavogs, Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósarhrepps eru með jólatrjáasölu á Fossá í Hvalfirði allar helgar fram að jólum kl. 10-16.
Upplýsingar um jólatrjáasölur skógræktarfélaganna má einnig finna á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands – www.skog.is/jolatre
Nýlegar athugasemdir