Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands var haldinn í Mosfellsbæ fyrstu helgina í september. Fundi lauk sunnudaginn 4. september, með samþykki tíu ályktana og eru þær sem hér segir:
- Græni stígurinn ofan höfuðborgarsvæðisins
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2. – 4. september 2022, hvetur sveitarfélög, SSH-Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Innviðaráðuneytið til að hrinda í framkvæmd gerð Græna stígsins ofan höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við skógræktarfélög á svæðinu. Græni stígurinn þarf að fara inn í viðræður sem hafnar eru milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033.
- Um sameiningu Skógræktarinnar og Landgræðslunnar
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, skorar á ráðherra landbúnaðar- og skógræktarmála að ganga varlega fram í úrvinnslu hugmyndar um sameiningu Skógræktarinnar og Landgræðslunnar. Skógræktarfélag Íslands óskar eftir því að félagið fái að leggja mat á álit starfshóps um hugsanlega sameiningu áður en til ákvarðana kemur, í samræmi við ákvæði Árósarsamningsins um þátttöku almennings í ákvarðanatöku stjórnvalda.
- Sveitarfélög, skipulagsáætlanir og framkvæmdaleyfi til skógræktar
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, skorar á sveitarstjórnir landsins að vinna að skipulagsáætlunum í takt við stefnu stjórnvalda um skógrækt á landsvísu og eru sveitarfélög hvött til að koma sér upp skilvirkum verkferlum og forðast óþarfa tafir og kostnað við afgreiðslu framkvæmdaleyfa vegna skógræktar.
- Skógræktarritið
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, beinir því til stjórnar og starfsmanna Skógræktarfélags Íslands að huga að auknu rafrænu aðgengi Skógræktarritsins.
- Um herferð gegn skógrækt
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, fordæmir þá herferð sem rekin hefur verið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum að undanförnu og beinist gegn skógrækt og íslensku skógræktarfólki. Með herferðinni er reynt að varpa rýrð á það metnaðarfulla og árangursríka starf sem unnið hefur verið að í skóglausasta landi Evrópu og sjöunda skógfátækasta ríki heims, þar sem náttúruskógar vaxa aðeins á 1,5% landsins og ræktaðir skógar á einungis 0,5% af flatarmáli landsins. Skóggræðsla (ræktun nýrra skóga) er árangurríkasta vopnið í baráttunni gegn gróður- og jarðvegseyðingu og jafnframt ein hagkvæmasta aðferðin til þess að draga úr uppsöfnun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu.
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands svarar kalli um aðgerðir gegn loftslagbreytingum. Félögin eru boðin og búin til að leggja sitt af mörkum og fagna hverskonar samstarfi við ríki, sveitarfélög, skógarplöntuframleiðendur, fyrirtæki og félagasamtök og alla þá sem vilja efla skógrækt, landgræðslu og kolefnisbindingu í landinu.
Jafnframt hvetur fundurinn til þess að skógargeirinn (skógræktarfélögin, Skógræktin, skógarbændafélögin) leiti leiða til þess að snúa vörn í sókn og efni til ráðstefnu sem allra fyrst um framtíðarskipulag skógræktar á Íslandi.
- Hvatningarverðlaun skógræktar
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, beinir þeim tilmælum til stjórnar Skógræktarfélags Íslands að á aðalfundum félagsins verði árlega veitt sérstök hvatningaverðlaun til einstaklinga eða hópa sem unnið hafa óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi.
- Skjólbelti við vegi
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, skorar á Vegagerðina í samvinnu við landeigendur, að planta skjólbeltum þar sem þörf er á meðfram þjóðvegum, þar sem hætta er á snörpum vindkviðum, skafrenningi og snjósöfnun. Við slíkar aðstæður getur skapast mikil slysahætta og umferðartafir, auk mikils kostnaðar við snjómokstur. Mikilvægt er að vanda vel til tegundavals og gera langtíma áætlun um ræktun skjólbelta meðfram þjóðvegum og öðrum fjölförnum vegum og setja slíkt verkefni í gang nú þegar.
- Um varnir gegn birkikembu og birkiþélu
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, skorar á Skógræktina, í samvinnu við Matvælastofnun og Umhverfisstofnun, að gera gangskör að því að bregðast við innfluttum evrópskum skaðvöldum, skordýrunum birkikembu og birkiþélu sem nú valda stórfelldum skaða á íslensku birki. Þetta verði gert með lífrænum vörnum, þ.e. með innflutningi vesputegunda sem í Evrópu gera það að verkum að þessi skordýr valda hvergi þeim skaða sem blasir við hérlendis. Rétt er að endurskoða gróðursetningu á birki í landinu þar til þessu takmarki er náð.
- Gróðrarstöðvar
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ 2. – 4. september 2022, hvetur starfandi gróðrarstöðvar og þá aðila sem vinna að stofnsetningu nýrra gróðrarstöðva til að auka framleiðslu á skógarplöntum í landinu svo nægilegt framboð á plöntum til skógræktar verði tryggt á komandi árum.
- Landsáætlun í skógrækt
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2. – 4. september 2022, hvetur Matvælaráðuneytið til að endurskoða sameinaða tillögu að landsáætlun í landgræðslu og skógrækt.
Samkvæmt skógræktarlögum (skv. 4. gr. laga um skóga og skógrækt nr. 33/2019) skal landsáætlun í skógrækt vera í gildi.