Aðalfundur Skógræktarfélagsins Merkur verður haldinn á Hótel Kirkjubæjarklaustri laugardaginn 24. apríl kl. 13.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál
Kaffiveitingar í boði félagsins.
Í lok fundarins mun Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, segja frá ferð Skógræktarfélags Íslands til Noregs s.l. haust og flytja erindið: Skiptiferðir til Noregs í 60 ár – saga og reynsla. Er eitthvað þangað að sækja fyrir skógræktarfólk á nýrri öld ?
Stjórnin.