Aðalfundur Skógræktarfélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 5. apríl næstkomandi kl. 20:00 í sal Garðyrkjufélags Íslands, Síðumúla 1 (gengið inn Ármúla megin).
Dagskrá aðalfundar:
• Skýrsla um starfsemi félagsins síðastliðið ár.
• Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
• Kosning samkvæmt félagslögum.
• Tillögur um framtíðarstarfsemi félagsins.
• Önnur mál sem fram eru borin.
Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, flytur erindið Skógrækt og hreint vatn: hvað vitum við?
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur