Aðalfundur Skógræktarfélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 15. febrúar, kl. 20:00 í stofu 101 Háskólatorgi, í Háskóla Íslands.
Dagskrá:
1. Skýrslur formanns og framkvæmdastjóra
2. Reikningar
3. Lagabreytingar
4. Kosning stjórnar
5. Kosning fulltrúa á aðalfund SÍ
6. Önnur mál
-Kaffihlé-
7. Fræðsluerindi
-Björn Traustason, Rannsóknastöð skógræktar – Mógilsá: „Hverjir eiga íslenska skóga?“
-Jón Kristófer Arnarson, Landbúnaðarháskóla Íslands -Reykjum í Ölfusi: „Ber og ávextir í borgarlandi“