Aðalfundur Skógræktarfélags Mosfellsbæjar 2018 verður haldinn í húsi Björgunarsveitarinnar Kyndils, Völuteigi 23, Mosfellsbæ, þriðjudaginn 17. apríl kl. 20:00.
Dagskrá
1. Almenn aðalfundarstörf
2. Önnur mál
3. Erindi. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, Skógræktinni, flytur erindi sem hún nefnir „Áhrif fjórföldunar nýskógræktar á Íslandi“.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Nýir félagar velkomnir.
Kaffiveitingar verða á staðnum.