Boðað er til aðalfundar Skógræktarfélags Garðabæjar mánudaginn 23. mars n.k. í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli við Kirkjulund og hefst fundurinn kl. 20:00.
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Kaffihlé
- Fræðsluerindi flytur Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar um Meltungu – trjásafn í Kópavogi. Trjásafnið í Meltungu er innst í Fossvogsdal á mörkum Kópavogs og Reykjavíkur og er fallegur garður sem alltof fáir vita af.
Allir velkomnir
Stjórn Skógræktarfélags Garðabæjar.