Aðalfundur Skógræktarfélags Borgarfjarðar verður haldinn þriðjudagskvöldið 14. apríl kl 20:00 í ráðstefnusal gamla skólans í Reykholti, Reykholtsdal.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
• Skýrsla stjórnar
• Reikningar
• Starfsáætlun
• Kosningar
• Ályktun stjórnar
• Önnur mál
Gestur fundarins, Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi og verkefnisstjóri Hekluskóga, flytur erindið „Hvert er hlutverk skóganna í ferðamennsku?“
Kaffiveitingar og spjall.
Hvetjum nýja sem gamla félaga til að mæta.
Stjórnin