Aðalfundur Skógræktarfélags Borgarfjarðar verður haldinn þriðjudaginn 8. apríl kl. 20:00 í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi (Sæunnargötu 2a).
Dagskrá:
Kl. 20:00 | Fræðsluerindi. Ása Erlingsdóttir fjallar um skógartengt útinám grunnskólabarna. Ása er kennari í Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi. |
Kl. 21:00 | Venjuleg aðalfundarstörf. Skýrsla stjórnar, reikningar, kosningar, fyrirspurnir og umræður. |
Fræðsluerindið og fundurinn er öllum opinn og eru nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir.
Kaffiveitingar í boði félagsins.