Skógræktarfélagið Mörk heldur aðalfund sinn í Kirkjubæjarstofu, Kirkjubæjarklaustri, laugardaginn 1. júní kl. 13:30.
Dagskrá fundarins:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Önnur mál
- Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands, flytur erindi „ Landnám birkis á Skeiðarársandi“.
Áhugavert verður að hlýða á erindi Þóru Ellenar um hinn mikla skóg sem vex af fræjum sem fokið hafa úr Skaftafellsheiðinni. Hefur hún ásamt Kristínu Svavarsdóttur rannsakað fyrirbæri þetta.
Allir áhugasamir velkomnir á fundinn.
Stjórn Merkur.