Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar 2022 verður haldinn í fimmtudaginn 28. apríl næstkomandi í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34 kl. 20.00. Gengið inn frá Strandgötu.
Kl. 20.00 – 20.45
- Venjuleg aðalfundarstörf
Kaffihlé
Kl. 21. 05 – 21.40
- Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf. flytur erindi sem hann nefnir: „Útivist í upplandi Hafnarfjarðar“.
Sjá nánar á heimasíðu félagsins: skoghf.is og fésbókarsíðu.