Nú er búin að vera veruleg þurrkatíð, með þurru lofti og sólskini sem þurrkar yfirborð jarðar. Í svona tíð er mikil hætta á svarð- og gróðureldum og þarf lítið til, eða eins og segir í laginu „Af litlum neista verður oft mikil bál“, eins og nýjustu fréttir úr Heiðmörk sýna alltof vel.
Því skiptir miklu máli að ganga sérstaklega varlega um:
- Hendið ekki sígarettum/vindlingum á víðavangi (á ekki að gera hvort sem er, en á sérstaklega við nú!).
- Bíðið með grillið/varðeldinn/kamínuna þar til kemur væta og almennt gildir að forðast skal að nota einnota grill og alls ekki setja þau niður á gróið land.
- Látið vita ef þið verðið vör við óábyrga umgengni.
Kynnið ykkur forvarnir og fyrstu viðbrögð – greinargóðar upplýsingar má finna á https://www.grodureldar.is/