Aðalfundur Skógræktarfélag Mosfellsbæjar verður haldinn þriðjudaginn 19. maí kl. 20:00 í sal Björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, Völuteigi 23.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra
- Skýrsla stjórnar 2019
- Reikningar félagsins 2019
- Ákvörðun um félagsgjöld 2020
- Stjórnarkjör
- Önnur mál
Vegna Covid-19 verða engar veitingar að loknum fundinum. Af sömu ástæðu verður ekki haldið erindi á fundinum eins og venjan er. Farið verður eftir 2 m reglunni og verður spritt á staðnum.