Aðalfundur Skógræktarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn í húsi Björgunarsveitarinnar Kyndils, Völuteigi 23, Mosfellsbæ, mánudaginn 10. apríl kl. 20:00.
Dagskrá
1. Almenn aðalfundarstörf
2. Önnur mál
3. Erindi. Vatnið og skógurinn, Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Nýir félagar velkomnir.
Kaffiveitingar verða á staðnum.
Í ár verðu fréttasíða í Mosfellingi sem kemur út 6. apríl í stað fréttabréfs. Þeir sem ekki búa í Mosfellsbæ geta skoðað heimasíðuna www.skogmos.net. En þar mun fréttasíðan koma inn eftir að blaðið er komið út.