Garðyrkjufélag Íslands (GÍ) og Samtök garðyrkju- og umhverfisstjóra (SAMGUS) standa fyrir málþingi um trjágróður í þéttbýli föstudaginn 27. febrúar, kl. 10:00-15:00 og er það haldið í sal Garðyrkjufélags Íslands að Síðumúla 1 (gengið inn Ármúlamegin).
Fundarstjóri er Þuríður Backman, formaður Garðyrkjufélags Íslands.
Dagskrá – með fyrirvara um breytingar:
9:30-10:00 | Skráning Kaffisopi og spjall |
10:00 | Setning Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar og formaður SAMGUS. |
Trjágróður í borg og bæ Kristinn H. Þorsteinsson, fræðslu- og verkefnastjóri GÍ. Með trú og dirfsku brautryðjandans hafa orðið gífurlegar breytingar á gróðurfari í þéttbýli. Í erindi þessu verður hugað að mörgu áhugaverðu sem fyrir auga ber þegar gengið er um í borg og bæ. |
|
Rótlaust tré stendur ekki stöðugt – um tré og skipulagsmál Hrafnkell Proppé, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins. Í erindinu er fjallað um stöðu trjáa í síkviku skipulagsumhverfinu og velt vöngum yfir gildi trjáa í borgarumhverfi. Greint verður frá nýlegum niðurstöðum íbúakannanna sem draga fram áhyggjur íbúa af grænum svæðum á höfuðborgarsvæðinu. Komið verður inn á fjórðu víddina – tímann, sem lykilatriði í vexti trjánna sem borganna. |
|
Trjáræktarstefna Reykjavíkur Þórólfur Jónsson, deildarstjóri Náttúru og garða hjá Reykjavíkurborg. Kynnt verður stefna Reykjavíkurborgar í trjáræktarmálum sem samþykkt var í borgarstjórn þann 19. nóvember 2013. |
|
Ástand götutrjáa, skemmdir, hættur og leiðir til úrbóta Magnús Bjarklind, skrúðgarðyrkjutæknir hjá EFLU ehf. Fjallað verður um ástand götutrjáa, m.a. í Reykjavík. Hverjir eru helstu skaðvaldar og mögulegar hættur af völdum núverandi ástands. Einnig fjallað um nýjar leiðir í ræktun trjágróðurs við erfið skilyrði, m.a. takmarkað rótarrými. |
|
12:00 | Matarhlé Boðið verður upp á súpu, brauð og grænmeti á staðnum. Innifalið í þátttökugjaldi. |
12:45 | Fágæt og merkileg tré í Reykjavík Einar Ó. Þorleifsson og Björk Þorleifsdóttir. Fjallað verður um söguleg og fágæt tré í Reykjavík. Mikilvægi trjánna og gildi í borgarumhverfinu ásamt verndargildi. Skrásetning og fræðsla. |
Skógurinn í borginni og borgin í skóginum Gústaf Jarl Viðarsson skógfræðingur hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Fjallað verður um borgarskóginn, útbreiðslu trjágróðurs í Reykjavík, skógræktarskilyrði á höfuðborgarsvæðinu og þá þjónustu sem trén í borginni veita íbúum. |
|
Götutré, borgarskógrækt og val á trjátegundum Samson Bjarnar Harðarson, lektor við LBHÍ og verkefnisstjóri Yndisgróðurs. Líf trjáa í borgum er hættuspil. Borgartré lifa oft við erfiðar aðstæður, mengun, salt af götum, lítið rótarrými og þeim stendur stöðug hætta af skemmdarvörgum, bílum, byggingarframkvæmdum og misviturlegum stjórnsýsluákvörðunum. Í erindinu verður fjallað um viðmið um val á trjátegundum í borgarumhverfi. |
|
Markmið um trjágróður í Garðabæ Erla Bil Bjarnardóttir, umhverfisstjóri Garðabæjar. Kynnt verða markmið um trjágróður í Garðabæ sem umhverfisnefnd setti og samþykkt var í mars 2014, fræðslu til íbúa um trjágróður á lóðum og árlega könnun trjágróðurs á lóðamörkum. |
|
14:45 | Samantekt og fundarslit. |
Bókakaffi
Að loknu málþingi geta þátttakendur fengið sér kaffi og kynnt sér mikið úrval bóka um trjágróður sem Garðyrkjufélagið er með í sölu, að ógleymdu bókasafni félagsins.
Skráning á málþingið er á netfanginu gardyrkjufelag@gardurinn.is . Verð kr. 8.000. Hádegisverður innifalinn. Verð fyrir námsmenn: kr. 6.000.
Fyrir þær stofnanir og fyrirtæki sem senda marga starfsmenn á málþingið er boðið upp á að fjórði hver þátttakandi sé ókeypis.