Málþing til heiðurs Ingva Þorsteinssyni áttræðum verður haldið í Norræna húsinu fimmtudaginn 29. apríl.
Dagskrá:
Aðalfundur:
14:00 Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs
14:50 Kaffi- og kleinuhlé
Málþing: Fundarstjóri Björn Sigurbjörnsson
15:05 Hver er Ingvi Þorsteinsson? Björn Sigurbjörnsson
15:15 Gróðurrannsóknir Ólafur Arnalds
15:40 Gróðurkortagerðin Guðmundur Guðjónsson
16:00 Gróðurvernd Sveinn Runólfsson/Andrés Arnalds
16:20 Frjáls félagasamtök Árni Bragason
16:35 Umræður
17:00 Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur síðasta orð
Að málþinginu loknu verður boðið upp á veitingar, „þjóðlegan nestispakka“. Samkoman hefst á aðalfundi Gróðurs fyrir fólk í Landnámi Ingólfs en þangað eru allir málþingsgestir velkomnir.
Tekið var viðtal við Ingva í þættinum Vítt og breitt á Rás 1 fimmtudaginn 29. apríl og má hlusta á það hér.