Opið hús skógræktarfélaganna að hausti verður fimmtudagskvöldið 18. október og hefst kl. 20:00, í fundarsal á jarðhæð Arion-banka, Borgartúni 19. Gengið er inn um aðaldyr að austanverðu og er salurinn svo á vinstri hönd. Sagt verður í máli og myndum frá skógarferð til Skotlands, sem Skógræktarfélag Íslands stóð fyrir haustið 2011. Ferðasagan verður rakin og fjallað um skóg- og trjárækt í Skotlandi. Aðal skipuleggjandi ferðarinnar, skógfræðingurinn og Íslandsvinurinn Alexander Robertson, kemur til landsins deginum áður og eigum við von á því að hann mæti.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.