Í fræðslugöngu Skógræktarfélags Kópavogs og Skógræktarfélags Íslands um Selhóla í Lækjarbotnum þann 12. júní síðastliðinn slógu þeir Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri Kópavogs og Gísli Bragason jarðfræðingur rækilega í gegn sem leiðsögumenn. Þeir félagar fjölluðu þá gróður, jarðfræði og sögu staðarins.
Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri ætlar enn á ný að ausa úr viskubrunni sínum á þriðjudagskvöldið 10. júlí í fræðslugöngu um Kópavogsdal. Leitast verður við að kynna fólki þann gróður sem fyrir augu ber á þessu vinsæla útivistarsvæði og sagt verður frá sögu svæðisins.
Lagt verður í gönguna frá bílastæðinu við Digraneskirkju kl. 19:30.