Skógræktarfélag Eyfirðinga er með jólatrjáasölu í Laugalandsskógi á Þelamörk helgarnar 7.-8. og 14.-15. desember, kl. 11-15.
Þegar draumatréð er fundið verður hægt að orna sér við opinn eld og fá sér hressingu í boði félagsins. Oft skapast skemmtileg útivistarstemmning á svæðinu og heimsókn á Þelamörkina er ómissandi fyrir margar fjölskyldur í aðdraganda jóla.
Jólatrjáasalan styrkir starf félagsins sem annast útivistarsvæðið í Kjarnaskógi, m.a. treður þar göngustíga og skíðaspor og sér um tíu aðra skógarreiti á Eyjafjarðarsvæðinu.
Vegvísir:
Frá Akureyri/Dalvík – keyrt í átt að Þelamerkurskóla en áður en komið er að Laugalandsskógi og Þelamerkurskóla er beygt af þjóðvegi 1 við Grjótgarð og ekið eftir gömlum vegi samsíða þjóðveginum í átt að skóginum.
Allar nánari upplýsingar í síma 893-4047 eða á netfanginu ingi@kjarnaskogur.is
Hefðbundin jólatrjáasala verður svo í starfsstöð félagins í Kjarnaskógi. Hefst hún 5. desember og verður opin daglega fram á Þorláksmessu, kl. 10-18 (nema til hádegis á Þorláksmessu). Heimaræktuð tré og greinar og fleira fallegt! Nánari upplýsingar á heimasíðu félagins: https://www.kjarnaskogur.is/jolatre.
Staðsetning Laugalandsskógs:
https://goo.gl/maps/L8YocH3Dd2mLwbNk8
Sjá einnig Facebook-síðu félagsins – https://fb.me/e/1xFQTUh98
Fjölskyldustemmning í Laugalandsskógi.
Frá skreytingadeildinni.
Stolt með nýfundið jólatré.