Hér má finna ýmsar upplýsingar um íslensk jólatré og jólaskóga skógræktarfélaganna.
Verið velkomin í jólaskóginn
Upplýsingar um skógræktarfélög sem verða með jólatrjáasölu verða settar inn jafnóðum og þær berast.
Skógræktarfélag Akraness er með jólaskóg í Slögu sunnudaginn 17. desember kl. 12-15.
Skógræktarfélag A-Húnvetninga er með jólaskóg að Gunnfríðarstöðum sunnudaginn 17. desember kl. 11-15.
Skógræktarfélag Eyrarsveitar er með jólatrjáasölu helgina 16.-17. desember.
Skógræktarfélag Garðabæjar er með jólaskóg í Smalaholti laugardaginn 9. desember kl. 11:30-15:30.
Skógræktarfélag Ísafjarðar er með jólaskóg laugardaginn 9. desember kl. 13-15.
Skógræktarfélagið Mörk er með jólatrjáasölu í Stóra-Hvammi laugardaginn 16. desember kl. 13-15.
Skógræktarfélag Rangæinga er með jólaskóg í Bolholti laugardaginn 16. desember kl. 12-15.
Skógræktin og einstaka skógarbændur hafa einnig selt jólatré – veljum íslenskt og verslum í heimabyggð!