Skip to main content

Útgáfa

Samkvæmt lögum Skógræktarfélags Íslands er eitt af meginmarkmiðum þess að veita fræðslu um skóg- og trjárækt og gildi þess fyrir þjóðfélagið í heild, enda er þekking grundvallaratriði þess að ná góðum árangri í skógrækt. Í því skyni stendur félagið, í samvinnu við skógræktarfélögin og aðra góða samstarfsaðila, fyrir fjölbreyttu fræðslu- og útgáfustarfi.

Frá stofnun félagsins árið 1930 hefur það gefið út Skógræktarritið (áður Ársrit Skógræktarfélags Íslands), sem er eina tímaritið helgað skógrækt hér á landi. Hefur það verið aðal vettvangur skrifa íslenskra skógfræðinga og skógræktaráhugafólks um skógrækt og tengd málefni og hafa birst í því hinar fjölbreytilegustu greinar tengdar því.

Félagið hefur einnig gefið út fræðslubæklinginn Frækornið, þar sem fjallað er sérstaklega um afmarkaða þætti skógræktar, til dæmis einstakar trjátegundir.

Einnig gefur félagið út fréttablað, Laufblaðið, þar sem birtar eru fréttir af því helsta sem er á döfinni hjá skógræktarfélögunum og í íslenskri skógrækt almennt, en blaðinu er dreift til félagsmanna í skógræktarfélögunum.

Fyrir utan hina venjubundnu útgáfu Skógræktarfélags Íslands á Skógræktarritinu, Laufblaðinu og Frækorninu hefur félagið í gegnum tíðina gefið út ýmis stök, tilfallandi rit – bæklinga, afmælisrit og fleira.

Umsjón með persónuverndarstillingum

Afar Nauðsynlegt

Vafrakökur eru nauðsynlegar til að vefsetrið starfi eðlilega.

gdpr[allowed_cookies], gdpr[consent_types]

Notendasamskipti

Vafrakökurnar eru notaðar til að fylgjast með notendasamskiptum og skynja þegar hugsanleg vandkvæði koma upp. Þær hjálpa okkur að bæta þjónustu okkar með því að láta í té greiningargögn um hvernig notendur nota þetta vefsetur.

-

Markaðssetning

Notaðu vafrakökur til að nýta þér reynslu markaðssetningar til hins ýtrasta á veraldarvefnum. Allar aðgerðir/áætlanir eru að mestu leyti viðeigandi fyrir hvern einstakling og eru jafnframt viðeigandi valkostur fyrir hvern ritstjóra vefseturs sem og aðra.

_
_ir