Aðalfundur Skógræktarfélags Skagfirðinga verður haldinn í Miðgarði.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun starfsfólk Skógræktarfélags Íslands vera með stutt fræðsluerindi. Jón Ásgeir Jónsson skógfræðingur nefnir sitt erindi „Á meðal trjánna“ og Ragnhildur Freysteinsdóttir umhverfisfræðingur fjallar um Yrkju – sjóð æskunnar til ræktunar landsins.