Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands 2023 var haldinn á Patreksfirði dagana 1. – 3. september og voru það Skógræktarfélag Patreksfjarðar, Skógræktarfélag Bíldudals og Skógræktarfélag Tálknafjarðar sem voru sameiginlega gestgjafar fundarins.
Fundurinn hófst föstudagsmorguninn 1. september með ávarpi Jónatans Garðarssonar, formanns Skógræktarfélags Íslands. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa um morguninn fluttu ávörp forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Tønnes Svanes, sendifulltrúi Norska sendiráðsins á Íslandi. Var þeim við þetta tilefni færð fyrstu eintök af nýútgefinni bók er heitir Frændur fagna skógi, eftir Óskar Guðmundsson, en bókin fjallar um samskipti þjóðanna í skógarmálum, sérstaklega skiptiferðir norskra og íslenskra skógræktarmanna fyrr á árum og kemur hún út bæði á íslensku og norsku.
Einnig undirrituð Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, og Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, nýjan Landgræðsluskógasamning í byggðarlaginu.
Deginum lauk svo með skoðunarferð í skóglendi í Tálknafirði og létu fundargestir blástur og úrkomu ekki stoppa sig í að njóta skógarins og skemmta sér.
Laugardagurinn 2. september hófst með fræðsluerindum og svo tók við skoðunarferð dagsins, að skógarreit í Skápadal, í Sauðlauksdal og að safninu á Hnjóti. Um kvöldið var svo komið að hátíðarkvöldverði. Þar voru fimm félagar úr hópi gestgjafanna heiðraðir og voru það þau Eiður B. Thoroddsen og Helga Gísladóttir frá Skógræktarfélagi Patreksfjarðar, Brynjólfur Gíslason frá Skógræktarfélagi Tálknafjarðar og Nanna Sjöfn Pétursdóttir og Finnbjörn Bjarnason frá Skógræktarfélag Bíldudals. Einnig var Magnús Gunnarsson, fyrrverandi formaður Skógræktarfélags Íslands, kjörinn heiðursfélagi þess og færði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, honum gullmerki félagsins.
Á sunnudegi var aftur komið að formsatriðum aðalfundar, afgreiðslu reikninga og stjórnarkjörs. Sem formaður Skógræktarfélags Íslands var Jónatan Garðarsson endurkjörinn. Úr stjórn áttu að ganga Nanna Sjöfn Pétursdóttir, Skógræktarfélagi Bíldudals og Berglind Ásgeirsdóttir, Skógræktarfélagi Suðurnesja. Gáfu þær báðar kost á sér áfram og voru endurkjörnar.
Fimm tillögur að ályktunum aðalfundar voru einnig samþykktar:
- Skógarreitir og græn svæði innan byggðar
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Patreksfirði 1. til 3. september 2023, hvetur sveitarfélögin til að huga sérstaklega að verndun og varðveislu skógarreita, trjálunda og grænna svæða innan byggðar í næsta nágrenni. Það er vanmetið hvað græn svæði hafa mikla þýðingu fyrir lífsgæði allra landsmanna, bæta skjól í og við þéttbýli, hvetja til útiveru, fjölskyldusamveru og stuðla að bættri geðheilsu. Jafnframt eru mikil verðmæti fólgin í grænum svæðum, bæði í trjánum sjálfum sem og þeim áhrifum sem þau hafa á nærsamfélagið. Bæði sveitarfélög og íbúar njóta góðs af því. Enn fremur er kolefnisbinding trjágróðurs mikilvæg mótvægisaðgerð í loftslagsmálum.
- Samþætting landgræðslu og skógræktar
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Patreksfirði 1. – 3. september 2023, samþykkir að aðalfundurinn kjósi þrjá fulltrúa í nefnd sem hafi það verkefni að vinna að samþættingu verkefna þegar ný stofnun hefur tekið við af Landgræðslunni og Skógrækinni. Nefndin vinni í nánu sambandi við stjórn Skógræktarfélags Íslands. Það er mikilvægt að efna til samvinnu við nýja stofnun.
- Úrgangur frá skógarsvæðum
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Patreksfirði 1. – 3. september 2023, hvetur til þess að skógræktarfélög í landinu samræmi reglur um meðferð og flokkun úrgangs sem til fellur á skógarsvæðum. Í þessu samhengi þarf að hafa samræmdar merkingar og leiðbeiningar til allra sem ganga um opin svæði innan marka sveitarfélaga.
Jafnframt hvetja skógræktarfélögin sveitarfélög til að tryggja að móttökustöðvar fyrir sorp séu aðgengilegar á öllum tímum þannig að ekki komi til þess að íbúar hendi almennu sorpi inn í skógarreiti í grennd við þéttbýli. Í dag fellur mikill kostnaður á skógræktarfélög um allt land við hreinsun á sorpi úr skógarreitum og fellur hann alfarið á félögin.
- Skipulagsmál
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Patreksfirði 1. til 3. september 2023, hvetur Innviðaráðherra til að láta gera breytingar á skipulagslögum í því augnamiði að ljóst verði hvort og hvenær skógrækt sé háð framkvæmdaleyfi sveitarfélags. Einnig er nauðsynlegt að lög mæli fyrir um verkferla við upplýsingaöflun og afgreiðslu framkvæmdaleyfis vegna skógræktar svo öflun þess verði skógræktendum hvorki fjárhagslega íþyngjandi né tímafrek úr hófi fram.
- Landgræðsluskógar
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Patreksfirði 1. til 3. september 2023 , hvetur matvælaráðherra til þess að vinna að nýjum og framlengdum samningi um Landgræðsluskóga.