Fagráðstefna skógræktar 2014 verður haldin á Hótel Selfossi dagana 12.-13. mars og er rúmlega helmingur erinda tengur þemanu „skógur og skipulag“.
Ráðstefnugögn verða afhent kl. 18:00 til 20:00 þriðjudaginn 11. mars. Allir eru hvattir til að mæta strax á umræddum tíma á þriðjudeginum og nota kvöldið til að rækta tengslin við annað skógarfólk. Dagskrá ráðstefnunnar hefst svo kl. 9:00 á miðvikudagsmorgni.
Skráning á ráðstefnuna fer fram til 12. febrúar í tölvupósti til harpadis@sudskogur.is eða í síma 480 1825. Við skráningu þarf að taka fram hvort gist er eina eða tvær nætur og á hvaða kennitölu reikningur á að fara. Ráðstefnuhaldarar ganga frá pöntun við hótelhaldara á Hótel Selfoss. Greiða þarf gistingu og mat á staðnum til hótelsins, en ráðstefnugjald verður innheimt af Suðurlandsskógum.
Kostnaður:
Ráðstefnugjald: (leiga á fundarsal, skoðunarferð, ráðstefnugögn, veislustjórn m.m. ) |
kr. 4.000 .- |
Ráðstefnugjald með nemendaafslætti |
kr. 2.000.- |
Gisting tvær nætur og matur (gist í 2ja manna herbergi) |
kr. 28.710.- |
Gisting eina nótt og matur (gist í 2ja manna herbergi) |
kr. 21.220.- |
Gisting tvær nætur og matur (gist í eins manns herbergi) |
kr. 36.730.- |
Gisting eina nótt og matur (gist í eins manns herbergi) |
kr. 25.230.- |
Matur án gistingar |
kr. 13.730.- |
Innifalið í gjaldi fyrir gistingu og mat er: Gisting á Hótel Selfoss með morgunmat, einn hátíðarkvöldverður, tveir hádegisverðir og ráðstefnukaffi með meðlæti.
Dagskrá:
Þriðjudagur 11. mars
18:00-19:00 |
Skráning og afhending ráðstefnugagna |
19:00-20:00 |
Kvöldverður – frjálst |
20:00 -> |
Spjall og ýmsir fundir s.s. aðalfundur Skógfræðingafélagsins |
Miðvikudagur 12. mars
Fundarstjórar: Sæmundur Þorvaldsson og Ólöf Sigurbjartsdóttir
8.30-9.00 |
Afhending ráðstefnugagna |
9:00- 9:20 |
Gestir boðnir velkomnir. Umhverfis- og landbúnaðarráðherra setur ráðstefnuna. |
9:20-9:45 |
Skógar Evrópu. Samningar um sjálfbæra nýtingu Jón Geir Pétursson 20 mín. + umræður 5 mín. |
9:45-10:25 |
Skipulag skógræktar á Íslandi Björn Barkarson 30 mín. + umræður 10 mín. |
10:25-10:50 |
Kaffihlé |
10:50-10:55 |
Örerindi. Jákvæðir fjölmiðlar Magnús Hlynur Hreiðarsson |
10:55-11:20 |
Að vega og meta margbreytileika lífríkis við skipulag, skógrækt og „skipulagslausa skógrækt“ Aðalsteinn Sigurgeirsson 20 mín. + umræður 5 mín. |
11:20-11:45 |
Skógrækt í skipulagsáætlunum sveitarfélaga Hallgrímur Indriðason 20 mín. + umræður 5 mín. |
11:45-11:55 |
Örerindi. Botnlæg sjávardýr Ásgeir Eiríkur Guðnason |
12-13:00 |
Hádegisverður |
13:00-13:25 |
Aðalskipulag Borgarbyggðar og mismunandi sjónarmið í nýtingu lands Ragnar Frank Kristjánsson 20 mín. + umræður 5 mín. |
13:25-13:50 |
Skógræktarstefna sveitarfélaga – aðferðafræði við greiningu mögulegs skógræktarlands Björn Traustason 20 mín. + umræður 5 mín. |
13:50-14:15 |
Hagfræði mismunandi landnýtingarkosta – Nóg land til skógræktar og annars landbúnaðar Eggert Þórarinsson 20 mín. + umræður 5 mín. |
14:15-14:20 |
Örerindi. Bókarkynning. Skógarauðlindin – ræktun, umhirða og nýting |
14:20-14:45 |
Meðferð sveitarfélaga á framkvæmdaleyfi til skógræktar Þröstur Eysteinsson 20 mín. + umræður 5 mín. |
14:45-15.10 |
Skógrækt í bland við aðra landnýtingu Pétur Ingi Haraldsson 20 mín. + umræður 5 mín. |
15:10 – 15:35 |
Er skógrækt afturkræf aðgerð í nýtingu lands? Hreinn Óskarsson 20 mín. + umræður 5 mín. |
15:35-18:00 |
Kaffi úti í Hellisskógi |
19:30-> |
Kvöldverður og skemmtidagskrá |
Fimmtudagur 13. mars
Fundarstjórar: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir og Valgerður Jónsdóttir
9:00-9:25 |
Skógrækt sem fjárfestingarmöguleiki Þorbergur Hjalti Jónsson 20 mín. + umræður 5 mín. |
9:25-9:45 |
Sveppir og sveppanytjar í skógum á Íslandi Bjarni Diðrik Sigurðsson 15 mín. + umræður 5 mín. |
9:45-10:05 |
Könnun á hagkvæmni þess að kynda upp byggðina í Grímsey með viðarkögglum eða kurli Rúnar Ísleifsson 15 mín. + umræður 5 mín. |
10:05- 10:40 |
Kaffi Veggspjaldakynning – 5 mín. á veggspjald |
10:40-11:05 |
Brunavarnir Björn B. Jónsson og Böðvar Guðmundsson 20 mín. + umræður 5 mín. |
11:05-11:25 |
Stefnumótun um ræktun götutrjáa og val á tegundum Samson B. Harðarson 15 mín. + umræður 5 mín. |
11:25-11:45 |
Eru „mini“- plöntur lausnin ? Trausti Jóhannsson 15 mín. + umræður 5 mín. |
11:45-12:05 |
Skipulag í grunn – og endurmenntun í skógrækt á Íslandi Guðríður Helgadóttir 15 mín. + umræður 5 mín. |
12:05-13:00 |
Hádegisverður |
13:00-13:10 |
Örerindi. Kögglar (Pellet) til mismunandi nota Sigurður Halldórsson |
13:10-13:30 |
Fagurfræði skógræktar – helsi eða brúarsmíði Helena Guttormsdóttir 15 mín. + umræður 5 mín. |
13:30-13:45 |
Þátttaka Íslands í evrópuverkefninu COST FP1203, aðrar nytjar en viðarnytjar (Non wood forest products) Agnes Geirdal og Lilja Magnúsdóttir 10 mín. + umræður 5 mín. |
13:45-14:05 |
Skipulag skóga með tilliti til skógarafurða og nýtingarmöguleika þeirra Lilja Magnúsdóttir 15 mín. + umræður 5 mín. |
14:05-14:25 |
Innihald andoxunarefnis í greniberki á Íslandi, vinnsluaðferðir, einkaleyfishæfi og hagkvæmnisathuganir Hannes Þór Hafsteinsson 15 mín. + umræður 5 mín. |
14:25:14:40 |
Samantekt – Arnór Snorrason |
14:40-14:45 |
Næsta fagráðstefna í skógrækt – fulltrúi Vesturlands |
14:45-15:00 |
Tilkynningar og ráðstefnuslit |
Veggspjöld:
Hrymur á Hrútsstaði
Bergþóra Jónsdóttir
Ræktun ávaxtatrjáa á Íslandi
Hraundís Guðmundsdóttir
Bestu tré asparklóna – Staðan í asparkynbótaverkefninu
Halldór Sverrisson
Rannsókn á áhrifum af hlýnun jarðvegs á gróðurfar í skóglendi og graslendi á Reykjum, Ölfusi
Elín Guðmundsdóttir
Niðurstöður á lifun skógarplantna í úttekt Norðurlandsskóga
Bergsveinn Þórsson
Nýlegar athugasemdir