Sunnudaginn 21. júlí n.k. verður boðið til hátíðardagskrár í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í tilefni af því að fyrr á þessu ári hlaut garðurinn Skrúður á Núpi við Dýrafjörð, alþjóðleg verðlaun sem kennd eru við ítalska arkitektinn Carlo Skarpa. Fimm fulltrúar úr valnefnd og stjórn Menningarsjóðs Benetton, sem verðlaunin veita, heimsækja landið og mun taka þátt í dagskránni og fræða ráðstefnugesti um sjóðinn, verðlaunin og arkitektinn Carlo Scarpa.
Dagskráin fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði sunnudaginn 21. júlí n.k. kl. 9:30-17:00.
Fyrir hádegi verður stutt kynning á sögu byggðar á Vestfjörðum og farið verður í gönguferð á sögustaði í miðbæ Ísafjarðar. Að loknu hádegisverðarhléi kl. 14:00 verða flutt erindi um arkitektinn Carlo Scarpa, sögu Skrúðs og sögu íslenskra garða, og sagt verður frá menningarsjóði Benetton og alþjóðlegu verðlaununum sem kennd eru við Carlo Scarpa.
Í lok dagskrár verður opnuð sýning sem gerð var um Skrúð og sett upp á Ítalíu við afhendingu verðlaunanna s.l. vor. Boðið verður upp á léttar veitingar og óformlegt spjall en dagskránni í Edinborgarhúsinu lýkur kl. 17:00.
Dagskrá í Menningarmiðstöðinni Edinborg
09:30 |
Ávarp – Brynjólfur Jónsson Framkvæmdasjóði Skrúðs |
|
Þróun vestfirskra byggða og bæja – kynning |
|
Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt |
10:00 |
Skoðunarferð um Ísafjörð í fylgd heimamanna |
12:00 |
Hádegshlé – (Hádegisverður í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað fyrir þá sem þess óska) |
14:00 |
Ráðstefna um Skrúð, arkitektinn Carlo Scarpa og Alþjóðaverðlaun Carlo Scarpa |
|
Ávarp bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar Daníels Jakobssonar |
14:10 |
Erindi um Carlo Scarpa |
|
Domenico Luciani arkitekt og formaður Alþjóðaverðlauna Carlo Scarpa (Premio Internazionale Carlo Scarpa per il Giardino) |
14:50 |
Erindi um sögu íslenskra garða |
|
Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt |
15:10 |
Erindi um Skrúð |
|
Samson B. Harðarson landslagsarkitekt, lektor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri |
15:30 |
Erindi um alþjóðlegu Carlo Scarpa verðlaunin og Menningarsjóð Benetton |
|
Patrizia Boschiero ritari Alþjóðaverðlauna Carlo Scarpa (Premio Internatzionale Carlo Scarpa per il Giardino) |
16:00 |
Léttar veitingar og óformlegt spjall |
17:00 |
Dagskránni í Edinborgarhúsinu lýkur |
Nýlegar athugasemdir